Ertu í árshátíðarnefndinni, saumaklúbbnum eða vantar hópnum þínum lag fyrir árshátíðar skemmtunina?
Ég býð upp á fullkomna aðstöðu til að taka upp lagið og útsetja hljóðið svo útkoman verði fagmannleg og eftirminnileg.
Tími: Við miðum við 2,5 klukkustundir fyrir hvern hóp. Það gefur okkur góðan tíma til að fínpússa sönginn og ná réttu stemningunni.
Uppsetning: Verðið miðast við allt að 3 forsöngvara sem leiða lagið, en svo getur allur hópurinn mætt og sungið hressa kóra yfir.
Undirspil: Þið veljið hvaða lag sem er. Ég get fjarlægt sönginn af nánast hvaða lagi sem er svo þið fáið hreint undirspil (karaoke) til að syngja yfir.
Texti á skjá: Ef þið eruð með frumsaminn texta, sendið hann á andrihljod@gmail.com fyrirfram svo ég geti sett hann upp á skjá í söngklefanum.
Myndver: Ég er með tvær myndavélar í stúdíóinu sem taka ferlið upp. Þið fáið allt hráefnið sent til ykkar.
Fyrir þá sem vilja fá tilbúna vöru á silfurfati, þá býð ég upp á að klippa myndbandið fyrir ykkur ef þess er óskað. Þá fáið þið fullunnið myndban, tilbúna til sýningar á stóra tjaldinu!
Hafið samband fyrir verðhugmynd í klippingu, þar sem hún fer eftir umfangi verkefnisins.
Verð fyrir upptöku: 65.000 kr. fyrir hópinn. (miðast við 2,5 tíma og allt að 3 forsöngvara).
Afhending: Öllu efni (hljóði og mynd) er deilt í gegnum Dropbox svo allir í hópnum eða nefndinni hafi aðgang að efninu hvenær sem er.
Endilega hafið samband til að fá verðtilboð og ræða komandi verkefni.