Hjá Stúdíó Andra snýst heimsóknin um meira en bara að ýta á „upptöku“. Við leggjum áherslu á að skapa andrúmsloft þar sem öllum líður vel, hvort sem þú ert feiminn byrjandi eða vanur söngvari.
Persónuleg nálgun: Við undirbúum lagið þitt fyrirfram, fjarlægjum upprunalegan söng, græjum textann á skjá og svo er allt klártog þú getir einbeitt þér algjörlega að flutningnum.
Fagmennska og tækni: Við notum hágæða hljóðnema og upptökubúnað sem fangar það besta í hverri röddu. Á meðan þú syngur vinnum við að því að ná sem bestu tökum og hljóðblanda verkið jafnóðum.
Sjónræn minning: Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að fanga augnablikið á símann. Með myndavélum í stúdíóinu tryggjum við að þú eigir hágæða hráefni af öllu ferlinu.
Einföld afhending: Um leið og tökum lýkur hefst eftirvinnslan. Innan skamms færðu sendan Dropbox-hlekk með öllu efninu, tilbúið til deilingar með vinum, fjölskyldu eða vinnufélögum.
[ Andir Freyr Magnússon ]