Hér eru helstu upplýsingar fyrir gæsa og Gæsanir og Steggjanir steggja hópa varðandi upptöku hjá Stúdíó Andra. Þetta er frábær skemmtun og minning sem endist!
Verð: 38.000 kr. fyrir hópinn.
Tími: Við gerum ráð fyrir um einni klukkustund í stúdíóinu. (1.5 tími fyrir hverja bókun).
Lagið: Þið veljið ykkur eitt lag fyrirfram. Ég get tekið sönginn út af hvaða lagi sem er til að búa til undirspil (karaoke).
Texti: Það er frábært að koma með frumsaminn texta! Vinsamlegast sendið hann á andrihljod@gmail.com með góðum fyrirvara svo ég geti sett hann upp á skjáinn í söngklefanum.
Uppsetning: Venjan er að gæsin/steggurinn byrji að syngja og svo mætir allur kórinn til leiks í viðlögunum.
Myndbönd: Ég er með tvær myndavélar í stúdíóinu sem taka ferlið upp. Þið fáið hráefnið úr báðum vélum sendan til ykkar svo þið getið klippt þetta saman að vild. Þið þurfið því ekki að standa í myndatökum sjálf, nema þið viljið.
Afhending: Ég deili öllu efninu (hljóði og mynd) í gegnum Dropbox svo allir í hópnum geti nálgast það hvenær sem er.
Stúdíó Andri er til húsa í Bláu húsunum í Faxafeni (Suðurlandsbraut 54).
Endilega hafið samband til að fá verðtilboð og ræða komandi verkefni.